Stefnum á sjálfbærni
Hvetjandi afl
Við viljum leggja okkar af mörkum til að stuðla að sjálfbærni og vernd umhverfisins. Sjóðurinn hefur unnið að því að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar með markvissum aðgerðum og ábyrgri nýtingu auðlinda.
Sjóðurinn leggur áherslu á að veita sjóðfélögum sínum faglega og góða þjónustu í takt við þarfir og vilja þeirra.
Brú lífeyrissjóður birtir nú í annað sinn sjálfbærniskýrslu og sjálfbærniuppgjör samhliða ársskýrslu. Við erum stolt af vinnu okkar í þessum málaflokki en það er markmið sjóðsins að vera hvetjandi afl til árangurs í sjálfbærum rekstri.
Sjálfbærniskýrslan er unnin samkvæmt UFS-viðmiðum Nasdaq sem leiðbeina við mat á stöðu umhverfis- og félagslegra þátta hjá sjóðnum auk gæða stjórnarhátta. Við gerð skýrslunnar var einnig tekið mið af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Sjóðurinn hefur ákveðið að styðja sérstaklega við tvö þeirra.
Sjóðurinn birtir nú í annað sinn sjálfbærniskýrslu og sjálfbærniuppgjör samhliða ársskýrslu
Hvernig höfum við áhrif?
Markmiðasetning sjóðsins er í stöðugri þróun í átt að sjálfbærni. Þannig höfum við að undanförnu notið aðstoðar ráðgjafa m.a. við gerð sjálfbærnistefnu og mikilvægisgreiningu. Sjálfbærnimarkmið sjóðsins felast í að fjárfesta með ábyrgum hætti, draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, eflast í að innleiðingu sjálfbærniferla og huga að heilsu og vellíðan starfsfólks. Í þessari vegferð er mikilvægt að mæla árangur af sjálfbærnistefnu sjóðsins og miðla upplýsingum með ábyrgum og gagnsæjum hætti.
Hér fyrir neðan má sjá helstu markmið okkar á sviði sjálfbærni og aðgerðir til að ná árangri í þeim efnum. Sjálfbærnimarkmiðin í töflunni eru flokkuð eftir tengingu við stefnur og reglur sjóðsins, og með tilvísun í heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og UFS-þætti. Hafin er vinna með sjálfbærniráðgjöfum til að styðja sjóðinn enn frekar í uppbyggingu þekkingar á sjálfbærni og innleiðingu hennar í starfseminni allri.