Forsíða
3.4 Stærðir sjóðsins

Ið­gjöld

Iðgjöld veita réttindi til eftirlauna og áfallatrygginga.

Iðgjöld eru greidd til A og V deildar sjóðsins af heildarlaunum en eru almennt greidd af dagvinnulaunum í B deild. Réttindi sjóðfélaga í B deild eru tryggð með bakábyrgð launagreiðanda.

Iðgjald í A deild er 15,5% af heildarlaunum þar sem hlutur launþega er 4,0% og mótframlag launagreiðanda er 11,5%.

Iðgjald í V deild er 12,0-15,5% af heildarlaunum þar sem hlutur launþega er 4,0% og mótframlag launagreiðanda er annað hvort 11,5% eða 8,0%. Í samræmi við breytingu á lögum um lífeyrissjóði er iðgjaldið 15,5% frá 1. janúar 2023. 

Iðgjald í B deild er 12,0% af dagvinnulaunum og eftir atvikum af vaktaálagi og orlofs- og persónuuppbót. Ekki er greitt iðgjald af yfirvinnu. Hlutur launþega er 4,0% og mótframlag launagreiðanda er 8,0%.

Lagabreytingar munu hafa áhrif á V deild á árinu 2023

Iðgjaldagreiðslur

eftir deildum árið 2022

Meðalaldur

Meðalaldur virkra sjóðfélaga eftir deildum á árinu 2022.

A deild36,7ára
V deild40,0ára
B deild61,7ára

Launagreiðendur

fjöldi árið 2022

V deild er öllum opin og hefur því fleiri launagreiðendur en hinar deildirnar.

Launagreiðendur

tíu stærstu (fjárhæðir í m.kr.)
Launagreiðendur2022Hlutfall
1Reykjavíkurborg6.69133,0%
2Kópavogsbær1.6218,0%
3Hafnarfjarðarkaupstaður1.1865,9%
4Akureyrarbær8074,0%
5Garðabær7243,6%
6Reykjanesbær6033,0%
7Mosfellsbær5542,7%
8Sveitarfélagið Árborg5472,7%
9Strætó bs.3321,6%
10Slökkvilið höfuðborgarsvæðis bs.3141,5%
Aðrir6.88634,0%
Samtals20.264