UFS - þættir
Sjálfbærniuppgjör sjóðsins 2022 hefur að geyma upplýsingar um áhrif starfseminnar á umhverfið, félagslega þætti og stjórnarhætti.
Sjálfbærniuppgjörið
Uppgjörið er yfirfarið af Klöppum og byggir á upplýsingum sem safnað hefur verið yfir árið með umhverfishugbúnaðinum Klappir EnviroMaster. Sjálfbærniuppgjörið er unnið í samræmi við leiðbeiningar Nasdaq frá 2019 og meginreglur Greenhouse Gas Protocol aðferðafræðinnar.
Sjálfbærniuppgjörið er unnið í samræmi við meginreglur Greenhouse Gas Protocol aðferðafræðinnar
Umhverfið
Brú lífeyrissjóður vill starfa í sem mestri sátt við umhverfið og draga markvisst úr áhrifum starfseminnar á náttúruna, ásamt því að vinna að stöðugum framförum á þessu sviði.
Samstarf og grænar lausnir
Á árinu hélt sjóðurinn áfram samstarfi við hugbúnaðarfyrirtækið Klappir Grænar Lausnir sem þróar stafrænar umhverfisstjórnunarlausnir. Sá hugbúnaður mun auðvelda sjóðnum að fylgjast með frammistöðu eignasafnsins með tilliti til UFS-þátta.
Losun gróðurhúsalofttegunda
Losun gróðurhúsalofttegunda er skipt í þrjú umföng samkvæmt aðferðafræði Greenhouse Gas Protocol. Umfang 1 er öll sú losun sem er skilgreind sem bein losun, meðal annars losun vegna framleiðslu á vörum eða vegna bruna á eldsneyti í bifreiðum. Umfang 2 nær yfir óbeina losun vegna hitaveitu og rafmagns. Umfang 3 inniheldur aðra óbeina losun sem fellur innan virðiskeðju sjóðsins, t.d. vegna ferða starfsfólks til og frá vinnu, viðskiptaferða og/eða úrgangs.
Losun vegna ferða starfsfólks til og frá vinnu vegur þyngst í heildarlosuninni
Losun GHL | 2022 | 2021 | Eining |
---|---|---|---|
Umfang 1 | 0 | 0 | tCO2í |
Umfang 2 | 1,47 | 1,8 | tCO2í |
Umfang 3 | 8,46 | 12,4 | tCO2í |
Kolefnisspor | 9,93 | 14,2 | tCO2í |
Öll losun sjóðsins flokkast sem óbein losun
Kolefnisspor 2022
Kolefnisspor sjóðsins er reiknað í hugbúnaðarkerfi Klappa sem safnar gögnum frá upprunastað gagna eins og núverandi tækni leyfir og tryggir rekjanleika. Helstu niðurstöður uppgjörsins eru að kolefnisspor eða heildarlosun gróðurhúsalofttegunda frá rekstri sjóðsins nemur 9,9 tonnum koltvísýringsígilda (tCO2í). Losun vegna ferða starfsfólks til og frá vinnu vegur þyngst í heildarlosuninni. Næst mesta losunin er notkun á rafmagni og hitaveitu og minnsta losunin er tilkomin vegna förgunar og meðhöndlunar á úrgangi.
Losunarkræfni
Losunarkræfni sýnir heildarlosun gróðurhúsalofttegunda miðað við helstu úttaksstærðir rekstursins. Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda er sett í samhengi við orkunotkun, stöðugildi og fjölda fermetra.
Losunarkræfni GHL | 2022 | 2021 | Einingar |
---|---|---|---|
Orka | 61 | 74 | kgCO2í/MWst |
Starfsfólk | 397 | 542 | kgCO2í/stöðugildi |
Heildarrými | 20 | 28 | kgCO2í/m2 |
Kolefnishlutlaus fyrir árið 2030
Unnið er að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) í samræmi við loftslagsmarkmið sjóðsins og stefnt er að kolefnishlutleysi fyrir árið 2030. Öll losun í umfangi 2 ásamt losun vegna förgunar úrgangs og ferða starfsfólks í og úr vinnu var kolefnisjöfnuð fyrir árið 2022 á vegum Kolviðar.
Orkunotkun
Orkunotkun sjóðsins er vegna hitunar og notkunar rafmagns í starfsstöðinni að Sigtúni 42 í Reykjavík. Sjóðurinn á fjórðungshlut í eigninni og deilir því orkunotkun með öðrum eigendum fasteignarinnar. Í töflunni hér fyrir neðan má sjá heildarorkunotkun setta í samhengi við fermetra og stöðugildi.
Umfang 2 | 2022 | 2021 | Eining |
---|---|---|---|
Rafmagn | 0,3 | 0,3 | tCO2í |
Hitaveita | 1,2 | 1,4 | tCO2í |
Losun | 1,5 | 1,7 | tCO2í |
Sorpflokkun
Flokkunarhlutfall sjóðsins var 68,5% árið 2022 og hækkaði úr 54,4% árið áður. Sjóðurinn hefur sett sér það markmið að ná 80,0% flokkunarhlutfalli árið 2023 og 95,0% hlutfalli fyrir árið 2030. Hluti af markmiðinu er að lágmarka almennt sorp ásamt því að draga úr heildarmagni úrgangs sem fellur til vegna rekstursins.
Flokkunarhlutfall
Úrgangur á hvern starfsmann á árinu 2022 var 107,2 kg, samanborið við 149,6 kg á árinu 2021. Stærsti hluti úrgangs á árinu 2022 var blandaður úrgangur og blandaður pappír.
Skipting úrgangs árið 2022
Vilji er til að framlengja lífdaga tölvu- og skrifstofubúnaðar sem ekki nýtist lengur í starfsemi sjóðsins. Á árinu 2022 var tölvubúnaði fundið nýtt hlutverk hjá nýjum eigendum í samstarfi við Þekkingu og húsbúnaður var seldur í samstarfi við Efnisveituna.
Samgöngur og viðskiptaferðir
Ferðir starfsfólks til og frá vinnu vega mest í kolefnisspori sjóðsins eða um 75,0% af heildarlosun koltvísýringsígilda (CO2í). Sjóðurinn vill leggja sitt af mörkum til að draga úr þessari losun og hvetur því starfsfólk til að nýta heilsusamlega og vistvæna samgöngumáta. Meðal aðgerða til þess að ýta undir slíka þróun er samgöngustyrkur sem starfsfólki sjóðsins býðst að nýta sér.
Á árinu 2019 hafði sjóðurinn forgöngu um að setja upp hleðslustöð fyrir rafbíla við Sigtún 42 sem nýtist um 46,0% af starfsfólki sjóðsins.
Á árinu 2022 var aðeins farin ein viðskiptaferð. Ráðstefnur, fundir og viðburðir eru nú oft haldnir með fjarfundarbúnaði. Sú breyting hefur þegar orðið til þess að fækka viðskiptaferðum og búast má við að það sé varanleg þróun.
Á árinu 2022 var aðeins farin ein viðskiptaferð
Félagslegir þættir
Brú leitast við að stuðla að jafnrétti og jafnri meðferð starfsfólks. Sjóðurinn framfylgir jafnréttisstefnu í samræmi við ákvæði laga um jafna stöðu og rétt kynjanna.
Mannauður
Markmið sjóðsins er að skapa jákvætt og drífandi starfsumhverfi og verða þannig eftirsóknarverður vinnustaður fyrir hæft og metnaðarfullt starfsfólk.
Í árslok 2022 störfuðu 25 hjá sjóðnum og voru 72,0% konur og 28,0% karlar. Stjórnendur sjóðsins eru 5 en frá 1. júlí eru þeir allir konur.
Á árinu hættu þrír starfsmenn, þar af voru tvö að ljúka sinni starfsævi. Ekkert vinnuslys var á árinu.
Jafnrétti fyrir alla
Rík áhersla er lögð á jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna ásamt því að koma í veg fyrir mismunun á grundvelli kyns, kynþáttar eða af öðrum ástæðum.
Sjóðurinn er með jafnlaunavottun samkvæmt ÍST85-staðlinum. Vottunin nær til alls starfsfólks sjóðsins. Hún staðfestir að sjóðurinn hefur komið sér upp kerfi sem tryggir að málsmeðferð og ákvarðanir í launamálum séu kerfisbundnar, byggi á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismunun. Vottunin leiddi í ljós að það er enginn óútskýrður kynbundinn launamismunur hjá sjóðnum.
Sjóðurinn er með jafnlaunavottun samkvæmt ÍST85-staðlinum
Hollur og fjölbreyttur matur
Starfsfólk sjóðsins hefur fjölbreytt val um hollan og næringarríkan hádegismat þar sem meðal annars er gott úrval af grænmetis- og veganréttum en jafnframt eru í boði ferskir ávextir og grænmeti. Lagt er upp með að starfsfólk taki með sér heim afganga til að lágmarka matarsóun.
Heilsa og vellíðan
Starfsfólk er hvatt til að huga að heilsunni með margvíslegum hætti eins og með þátttöku í Lífshlaupinu og Hjólað í vinnuna. Boðið er upp á líkamsræktarstyrk og umhverfisvænn ferðamáti er verðlaunaður með samgöngustyrk. Til viðbótar hafa verið haldin regluleg fræðsluerindi tengd andlegri og líkamlegri heilsu. Sjóðurinn tekur einnig þátt í kostnaði vegna sálfræðiþjónustu starfsfólks og fjölskyldu þeirra.
Starfslokanámskeið og vinnustaðakynningar
Sjóðurinn býður sjóðfélögum námskeið um starfslok til að undirbúa breytingarnar sem þá verða. Á námskeiðinu er farið yfir lífeyrisréttindi sjóðfélaga hjá sjóðnum og Tryggingastofnun ríkisins. Einnig býður sjóðurinn upp á vinnustaðakynningar þar sem þátttakendur fá yfirsýn yfir lífeyrismál.
Sjóðurinn býður upp á vinnustaðakynningar þar sem þátttakendur fá yfirsýn yfir lífeyrismál
Traustir stjórnarhættir
Stjórn og stjórnendur sjóðsins leggja áherslu á að hafa góða stjórnarhætti að leiðarljósi í öllum verkum sínum.
Starfsreglur stjórnar
Sjóðurinn hefur sett sér starfsreglur í samræmi við 51. gr. reglna um ársreikninga lífeyrissjóða nr. 335/2015. Við mótun stjórnarhátta hefur verið stuðst við leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja sem Viðskiptaráð Íslands, Nasdaq Iceland og Samtök atvinnulífsins hafa gefið út. Sjóðurinn telur að góðir stjórnarhættir og skilvirk innri og ytri samskipti séu undirstaðan fyrir sjálfbærum og farsælum rekstri.
Sjóðurinn telur að góðir stjórnarhættir séu undirstaðan fyrir sjálfbærum og farsælum rekstri
Samskipta- og siðareglur
Sjóðurinn hefur sett sér samskipta- og siðareglur með það að markmiði að koma á góðum starfsháttum, gæta að hagsmunum sjóðfélaga, tryggja að viðskipti séu stunduð af heilindum, koma í veg fyrir spillingu og mútur og hlúa að orðspori sjóðsins.
Verklagsreglur um verðbréfaviðskipti starfsfólks og stjórnar
Undir reglurnar falla stjórn sjóðsins, nefndir og tilteknir einstaklingar í hópi starfsfólk, auk fjölskyldna þeirra, og er þeim ætlað að tryggja vandaða starfshætti sem stuðla að trúverðugleika og koma í veg fyrir hagsmunaárekstra. Framangreindir aðilar þurfa að upplýsa sjóðinn um eignir sínar í fjármálagerningum þegar þeir hefja störf og upplýsa um breytingar á þeirri eign á starfstíma sínum.
Peningaþvætti
Sjóðurinn hefur sett sér reglur á grundvelli laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Með reglunum er leitast við að koma í veg fyrir að sjóðurinn verði notaður til að þvætta fjármuni eða fjármagna hryðjuverkastarfsemi.
Ábyrgar fjárfestingar
Sjóðurinn hefur sett sér stefnu um ábyrgar fjárfestingar sem setur siðferðisleg viðmið fyrir fjárfestingar sjóðsins. Sjóðurinn leggur áherslu á að fjárfestingar hans uppfylli kröfur um samfélagslega ábyrgð, góða stjórnarhætti og sjálfbærni. Ábyrgð í umhverfis- og samfélagsmálum þjónar hagsmunum bæði fjárfesta og samfélagsins.
Brú ávaxtar fjármuni sjóðfélaga með heildarhagsmuni þeirra að leiðarljósi og leggur áherslu á faglega nálgun við fjárfestingarákvarðanir sínar. Að auki lítur sjóðurinn til viðmiða Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar (UN Principles for Responsible Investment (PRI)).
Sjóðurinn er í samstarfi við eftirtalin samtök og fyrirtæki sem stuðla með einum eða öðrum hætti að ábyrgum og sjálfbærum fjárfestingum.
- Iceland SIF – sjálfstæður umræðuvettvangur fyrir ábyrgar og sjálfbærar fjárfestingar
- Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni
- Climate Investment Coalition (CIC) – alþjóðleg samtök sem stuðla að aukinni fjárfestingu í hreinni orku og öðrum umhverfislausnum
- Klappir Grænar Lausnir hf. – sérhæfa sig í gerð hugbúnaðarlausna á sviði umhverfis- og loftslagsmála
Hluthafastefna
Sjóðurinn er langtímafjárfestir og hluthafastefna hans endurspeglar áherslur um góða og ábyrga stjórnarhætti. Sjóðurinn telur mikilvægt að félög sem skráð eru á hlutabréfamarkað framfylgi og viðhaldi góðum stjórnarháttum og upplýsi um stefnu sína er varðar starfskjör, umhverfismál og samfélagslega ábyrgð. Sjóðurinn hefur sett sér viðmið um nýtingu atkvæðisréttar og birtir á heimasíðu sinni upplýsingar um ráðstöfun atkvæða í félögum sem skráð eru í Kauphöllinni. Á heimasíðu sjóðsins má finna upplýsingar um framkvæmd hluthafastefnunnar.
Sjóðurinn er langtímafjárfestir og hluthafastefna hans endurspeglar áherslur um góða og ábyrga stjórnarhætti
Nasdaq | Stjórnarhættir | |
---|---|---|
S2 | Bannar sjóðurinn forstjóra að sinna stjórnarformennsku? | Já |
S2 | Hlutfall óháðra stjórnarmanna í prósentum. | 100% |
S3 | Fá framkvæmdastjórar formlegan kaupauka fyrir að ná árangri á sviði sjálfbærni? | Nei |
S5 | Ber birgjum að fylgja siðareglum? | Nei |
S6 | Fylgir sjóðurinn stefnu um siðferði og/eða aðgerðum gegn spillingu? | Já |
S6 | Hlutfall starfsmanna sem hefur formlega staðfest að það fylgi stefnunni? | 100% |
S7 | Framfylgir sjóðurinn stefnu um persónuvernd? | Já |
S7 | Hefur sjóðurinn hafist handa við að fylgja GDPR reglum? | Já |
S8 | Gefur sjóðurinn út sjálfbærniskýrslu? | Já |
S8 | Eru gögn um sjálfbærni að finna í skýrslugjöf til yfirvalda? | Nei |
S9 | Veitir sjóðurinn upplýsingar um sjálfbærni til viðurkenndra aðila með skipulögðum hætti? | Nei |
S9 | Leggur sjóðurinn áherslu á tiltekin heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun? | Já |
S9 | Setur sjóðurinn markmið og gefur skýrslu um framvindu heimsmarkmiða SÞ? | Já |
S10 | Er upplýsingagjöf sjóðsins um sjálfbærni árituð eða endurskoðuð af þriðja aðila? | Nei |