Forsíða
3.9 Stærðir sjóðsins

Lán

Við veitum fasteignaveðtryggð lán til félaga í Brú og Lífeyrissjóði starfsmanna Reykjavíkurborgar.

Sjóðurinn býður fjölbreytt lán til íbúðakaupa, viðhalds á húsnæði eða endurfjármögnunar. Sjóðurinn leggur sig fram um að vinna hratt og vel úr lánsumsóknum og hafa sjóðfélagar verið ánægðir með þá þjónustu.

Á undanförnum árum hefur eftirspurn eftir lánum aukist til muna

Lykilhlutföll

Á undanförnum árum hefur eftirspurn eftir lánum aukist til muna og telja þau í dag um 28,7% af skuldabréfaeign sjóðsins og 14,8% af hreinni eign, samanborið við 16,1% og 11,4% árið 2018.

Hlutfall af skuldabréfum
16%
29%
2018
2022
Hlutfall af hreinni eign
11%
15%
2018
2022

Sjóðfélagar eru afar skilvísir og eru 90 daga vanskil vart mælanleg sem hlutfall af hreinni eign til greiðslu lífeyris. 

Skilvísi sjóðfélaga er mikil og vanskil vart mælanleg

Verðtryggingarhlutfall

Óverðtryggð lán hafa síðastliðin fimm ár verið í kringum 34,7-42,7% af veðskuldabréfum sjóðsins.

Fasteignaveð

eftir stærstu sveitarfélögum árið 2022

Fasteignaveð á höfuðborgarsvæðinu eru 88,3% af heildarveðum sjóðsins.